
Hlutverk RÚV er að upplýsa og fræða, skerpa skilning og þátttöku í samfélaginu, auka ánægju og hreyfa við fólki á uppbyggilegan hátt.

RÚV vill endurspegla litríkt samfélag.

Gildi RÚV einkenna vinnubrögð, viðhorf og framkomu starfsfólks.

Fimm stefnuáherslur liggja til grundvallar stærri og smærri aðgerðum RÚV til ársloka 2026.
Áherslurnar sem settar eru fram í stefnunni taka mið af lykilbreytingum í ytra umhverfi, viðhorfi og hegðun neytenda, þróun fjölmiðlamarkaðar og stöðu almannaþjónustumiðla. Stefnuskjöl systurstöðva annars staðar á Norðurlöndunum og Bretlandseyjum voru rýnd auk þess sem vinnan við stefnumótun RÚV er byggð á umfangsmiklum rannsóknum frá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU.
Önnur lykilatriði í ytra umhverfi eru samfélagsleg ábyrgð, tengsl við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, auknar áherslur á sviði jafnréttismála og umhverfis- og loftslagsmála, áherslur á fjölbreytileika, jafnræði, aðgengi og sýnileika fjölbreyttra hópa. Horft var til aukinnar norrænnar samvinnu við framleiðslu á efni auk þess sem stefnumótun og áherslur EBU á mörgum sviðum höfðu áhrif á að horft er á aukið virði almannaþjónustumiðlanna. Horft var til nauðsynjar þess að auka meðvitund um falsfréttir og leiðir til að sporna gegn þeim og upplýsingaóreiðu almennt, meðal annars með áherslu á miðla- og upplýsingalæsi.
Staða RÚV, hlutverk og áskoranir voru bornar saman við stöðu annarra almannaþjónustumiðla og þær leiðir sem þeir hafa valið og samhljómurinn er mikill. RÚV sinnir mikilvægri þjónustu í íslensku samfélagi sem er að miklu leyti sambærileg við þjónustu erlendra almannaþjónustumiðla.
FJÖLBREYTILEIKI, JAFNRÆÐI OG ÞÁTTTAKA
RÚV ber að endurspegla fjölbreytileika samfélagsins í dagskrá og allri starfsemi. Kynjajafnrétti er hornsteinninn í ytra og innra starfi og gætt er að jafnræði fjölbreyttra hópa og einstaklinga. Aðgengi allra að þjónustu RÚV skal vera tryggt og áhersla lögð á þjónustu við ólíka einstaklinga.
RÚV gegnir mikilvægu hlutverki við að byggja upp sjálfbært samfélag í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Það felur í sér skuldbindingu um að styrkja hringrásarhagkerfið, skapa virði og efla þá þætti í stefnumótun, aðgerðum og ákvarðanatöku er snúa að umhverfis- og loftslagsmálum, félagslegri sjálfbærni og ábyrgum stjórnunarháttum.
Stjórnskipulag RÚV er í stöðugri þróun. Breytingar eru gerðar til að styrkja dagskrárþróun, framleiðslu og miðlun til stafrænnar framtíðar. Nýtt skipurit var kynnt 2025.

Heilsa og velferð starfsfólks er markvisst höfð í forgrunni. Velferðaráherslur eru í fjórum meginþáttum: hreyfing og næring, vellíðan, jákvæð tengsl og aukin þekking. Á árinu bauðst starfsfólki ýmis ráðgjöf tengd velferð s.s. sálfræði-, næringar- og svefnráðgjöf og ráðgjöf til að takast á við og fyrirbyggja langvarandi streitu og álagseinkenni.
„Start-vika“ að hausti var helguð samstarfi og samvinnu. Haldin voru fræðsluerindi um samskipti og samvinnu og áhersla var lögð á að deildir kynntu starfsemi sína hver fyrir annarri. Þá var vikið frá hefðbundum matseðli í mötuneytinu þessa viku þar sem nokkrar deildir völdu rétti dagsins. Áfram er stutt við starfsþróun m.a. með tækifærum í gegnum EBU-samstarf.

Starfsfólk RÚV á kost á íþróttastyrk og er hvatt til vistvænna samgangna með tilboði um samgöngusamning. Starfsfólk getur fengið afnot af rafmagnshjóli endurgjaldslaust nokkra daga í einu til að hvetja til vistvænni samgangna til og frá vinnu.
Hugað var að hreyfingartengdum heilsuviðburðum með þátttöku í Lífshlaupinu og Hjólað í vinnuna. Þátttakan eykst ár frá ári enda er starfsfólk hvatt til að vera með og eru veitt hvatningarverðlaun.

Félagslífið var fjörugt á árinu. Starfsmannasamtök RÚV stóðu fyrir glæsilegri árshátíð í Gamla bíói á fyrri hluta ársins auk ýmissa annarra viðburða svo sem spurningakeppni, sumarhátíð og jólagleði þar sem RÚV-bandið kom, sá og sigraði.
Áralöng hefð er fyrir jólaballi í stúdíói A, sem er vel sótt fjölskylduskemmtun. Þorri og Þura og hressir jólasveinar stýrðu dansi kringum jólatréð. Fjölskyldudagur RÚVara hefur fest sig í sessi í upphafi sumars. Þá gefst starfsfólki kostur að bjóða fjölskyldum sínum í Efstaleiti í grill og gaman. Stúdíóin eru opnuð fyrir gestum og boðið upp á blöðrulist og söngatriði. Þá stóð RÚV fyrir vel heppnaðri fjölskyldustund í fimleikasal í samstarfi við starfsmannafélagið.


Allt starfsfólk styður við mikilvægt hlutverk RÚV sem almannaþjónustumiðils sem rýnir samfélagið, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.
Lögð er áhersla á að byggja upp hæfni og styrkja starfsfólk í fjölbreyttum hlutverkum innan RÚV. Starfsmannasamtöl eru notuð fyrir endurgjöf og sem vettvangur til að ræða starfsþróun. Stjórnendur hafa fengið reglulega þjálfun vegna starfsmannasamtala og endurgjafar.
Fjölmargir fræðslufundir voru haldnir á árinu. Allt árið var starfsfólki af erlendum uppruna boðið upp á einkakennslu í íslensku á vinnutíma sem einn af málfarsráðgjöfum á RÚV hefur á hendi.

Kapp var lagt á að hafa sem flest fræðsluerindi aðgengileg á fjarfundum. Áhersla var lögð á að vinna úr ábendingum starfsfólks um fræðslu til efla fagþekkingu t.d. á einstökum kerfum og forritum.
Haldið var áfram að þróa rafrænt fræðslukerfi þar sem starfsfólki gefst kostur á að sækja fræðsluefni þegar því hentar best. Í boði eru fjölmörg stutt og hnitmiðuð námskeið. Kerfið er mikilvæg upplýsingaveita fyrir starfsfólk um ýmis mannauðstengd mál og gegnir þýðingarmiklu hlutverki í upplýsingum til nýrra starfsmanna.

Safn Ríkisútvarpsins varðveitir sjónvarps- og útvarpsefni frá upphafi útsendinga árið 1930. Í gagnagrunni safnsins er ríflega ein milljón færslna. Safnið er opið almenningi í Efstaleiti og er safnaefni eftirsótt í fjölbreytta dagskrárgerð bæði innanlands og meðal sjálfstæðra framleiðenda víða um heim.
Á árinu var lögð sérstök áhersla á að styrkja innviði og verklag safnsins. Skráning nýs útvarps- og sjónvarpsefnis í langtímasafn var að stórum hluta sjálfvirknivædd sem dregur verulega úr handavinnu við frágang efnis. Dagskrá Ríkisútvarpsins frá upphafi útsendinga var skönnuð og gerð aðgengileg og leitarbær á timarit.is. Þá var gerð úttekt á núverandi gagnagrunni og hafinn undirbúningur að útboði fyrir nýjan gagnagrunn sem þjónar betur kröfum samtímans.

Unnið var markvisst að varðveislu og aðgengi að efni. Mörg þúsund hljóðskrár í safni RÚV voru talgreindar í samstarfi við máltæknifyrirtækið Tiro. Talgreiningin nýtist við skráningu efnis með mun meiri nákvæmni en áður var mögulegt.
Jafnframt lauk skráningu og greiningu á ómerktum segulböndum úr geymslum safnsins, þar á meðal fjölmörgum tónlistarupptökum á TD-böndum. Skráning lakkplötusafns Ríkisútvarpsins var færð í gagnagrunn og hljóðið gert aðgengilegt. Allt myndhráefni tengt leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 var yfirfært á stafrænt form.
Mikið af eldra sjónvarpsefni var skráð og gert leitarbært og sérstakt átak gert í skráningu nafna einstaklinga í gagnagrunni safnsins, þar sem eru rúmlega 400 þúsund nöfn. Nöfn voru tengd við kennitölur og tvítekningum eytt.
Starfsfólk safnsins fór í kynnis- og samstarfsheimsókn til SR og SVT í Stokkhólmi til að afla reynslu og styrkja alþjóðlegt samstarf.
Líkt og undanfarin ár var innslögum með völdum brotum úr safninu útvarpað hálfsmánaðarlega í Samfélaginu á Rás 1 og efni úr safni birtist reglulega á TikTok fréttastofunnar.

Aðgengi að miðlum RÚV er tryggt með ýmsum hætti. Hægt er að nálgast íslenskan texta í sjónvarpi og spilara með nær öllu innlendu efni sem sent er út. Texti er sendur út beint með fréttum og íþróttafréttum í sjónvarpi og menningarviðburðum á borð við Klassíkina okkar. Sjálfvirkur texti með beinum útsendingum hefur verið í þróun undanfarin ár svo hægt sé að bjóða upp á texta sem víðast. Sú þróun tekur tíma og sjálfvirka textunin eykst jafnt og þétt eftir því sem tækninni vindur fram. Síðustu ár hafa allir aukafréttatímar í sjónvarpi verið með sjálfvirkum texta, ásamt kosningaumfjöllun í beinni útsendingu og Silfrinu. Á árinu var aukið í sjálfvirka textun og nú má nálgast texta með veðurfréttum, Kastljósi og Stofunni. Stefnt að því að hafa sjálfvirkan texta aðgengilegan með fleiri reglubundnum útsendingum á næstunni.

RÚV.is er hannaður með það fyrir augum að aðgengi sé gott fyrir blint og sjónskert, hreyfihamlað, heyrnarlaust og heyrnarskert fólk og þau sem eru með þroskahömlun. Einnig er tekið tillit til þátta eins og lesblindu og að valda ekki flogaköstum. RÚV lætur reglulega gera úttekt á aðgengi á vef sínum og bætir það ef úttekt sýnir að þess sé þörf.
Fréttir á auðskildu máli eru birtar á vefnum til þess að fólk með þroskahömlun hafi aukið aðgengi að fréttum sem eykur möguleika þess á virkri þátttöku í samfélaginu. Fréttir á auðskildu máli nýtast jafnframt fleirum. Gervigreind er notuð við ritun frétta á auðskildu máli en mannshöndin fer yfir fréttirnar og gengur frá þeim til birtingar. Áfram verður haldið að þjálfa gervigreind í ritun frétta á auðskildu máli.
Kvöldfréttir, Krakkafréttir og aukafréttatímar eru túlkaðir á táknmál. Í samstarfi við Félag heyrnarlausra voru lögin í úrslitaþætti Söngvakeppninnar 2025 flutt á táknmáli á RÚV 2 af döff flytjendum. Auk þess var allt tal í þættinum túlkað á táknmál. Úrslitaþáttur Eurovision var enn fremur með táknmálstúlkun á RÚV 2.

RÚV hefur ríkar skyldur við íslenskt mál og áhersla er lögð á vandað mál í öllum miðlum. Málfarsráðgjafar lesa yfir, veita ráðgjöf og stuðla að bættri íslenskufærni starfsfólks, koma með ábendingar og halda fundi um málfar. Umfang yfirlestrar eykst ár frá ári. Málfarsráðunautur og málfarsráðgjafar sinna upplýsingagjöf og fræðslu um íslensku í miðlum RÚV meðal annars í þættinum Orð af orði sem hefur verið vikulega á Rás 1 frá 2013. Þeir halda líka utan um valið á orði ársins með dyggri aðstoð samtarfsfólks í öllum deildum. Gjaldskylda er orð ársins 2025.
RÚV tekur þátt í máltækniáætlun stjórnvalda og leggur lið við þróun máltækni. Þá á RÚV fulltrúa í Íslenskri málnefnd og Málræktarsjóði.

RÚV veitir íbúum sem hafa ekki íslensku að móðurmáli þjónustu á ensku og pólsku. Fréttastofa miðlar fréttum á ensku og pólsku og heldur úti hlaðvarpsþáttunum The Week in Iceland og Wyspa. Vinsælar íslenskar þáttaraðir eru aðgengilegar með enskum texta á RÚV 2 og í spilara. Talsettar fjölskyldumyndir sem sýndar eru á RÚV eru oft sýndar á sama tíma á frummálinu með íslenskum texta.
Meðalfjöldi stöðugilda
Meðalaldur starfsfólks
Meðalstarfsaldur starfsfólks
Hlutfall kvenna í hópi starfsmanna
Hjá RÚV starfar kraftmikill og fjölbreyttur hópur fólks sem vinnur verk sín af lífi og sál og er stolt af starfi sínu. Það er stefna RÚV að skapa sveigjanlegt starfsumhverfi sem laðar að hæfasta starfsfólkið á hverju sviði. Velferð, vellíðan og öryggi starfsfólks er í forgrunni á vinnustaðnum. Á árinu 2025 hlaut RÚV staðfestingu á jafnlaunavottun. RÚV hefur rekið vottað jafnlaunakerfi frá árinu 2019.
Árið 2025 voru starfsmenn RÚV 293 að meðaltali. Starfsmannavelta var 8,5% að frátöldum þeim sem hættu vegna aldurs.
Lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju starfsfólki og líðan þess og aðlögun er könnuð í nýliðasamtölum. Starfað er eftir stefnu um að auka fjölbreytileika í starfshópnum og jafna kynja- og aldurshlutföll. Í hópi nýliða blandast reynt eldra fólk við yngra starfsfólk. Aldursdreifing er nokkuð jöfn og meðalaldur er um 45 ár.
Mannauðsteymi starfar í samræmi við stefnu RÚV um að byggja upp og viðhalda góðu starfsumhverfi og vinnustaðarmenningu í öflugu þekkingar- og nýsköpunarsamfélagi. Stefna teymisins er að starfa í þágu velferðar og árangurs á vinnustaðnum og leggja áherslu á góð samskipti, samstarf og gæði. Samtöl, s.s. nýliða- og starfslokasamtöl, eru nýtt til umbóta allt árið. Fleiri störf voru auglýst árið 2025 en árið á undan. Jafnan er mikill áhugi á störfum hjá RÚV og um þúsund umsóknir bárust um auglýst störf.
Viðhorf starfsfólks til margra þátta í vinnuumhverfinu voru greind í viðhorfskönnun í lok árs. Töluverður árangur hefur náðst í ýmsum mikilvægum þáttum á síðustu árum svo sem í viðhorfi starfsfólks til stjórnunar og starfsþróunar. Starfsánægja og vellíðan í starfi mælist áfram sem mikill styrkleiki í starfseminni, einnig stolt af starfinu sem er einn af mikilvægustu styrkleikaþáttunum. Sem fyrr verður unnið að úrbótum í framhaldi af niðurstöðunum kannana. Helstu umbótaþættir snúa að álagstengdum þáttum, samstarfi á milli sviða og eininga innan RÚV og umbótum á starfsaðstöðu.
Heilsuvísitala starfsfólks
Frumkvæði, umboð og verkefni
Starfsánægja
Skuldbinding og hollusta
*Einkunn á bilinu 0-5 í viðhorfskönnun starfsmanna