REKSTRAR­­YFIRLIT 2025

Jákvæð afkoma og viðsnúningur í rekstri

 

Rekstur RÚV ohf. var krefjandi á árinu 2025. Engu að síður náðist að snúa rekstri félagsins við og tryggja að hann væri hallalaus þrátt fyrir að tekjur félagsins hafi dregist saman að raunvirði milli ára. Bætta afkomu má einkum rekja til þess að gripið var til ráðstafana um mitt ár 2024 til að bæta afkomu og sjóðstöðu félagsins. Þær skiluðu sér einnig á árinu 2025, meðal annars í fækkun stöðugilda og þar með raunlækkun á launakostnaði með jákvæðum áhrifum á rekstrarafkomu og sjóðstöðu félagsins.

Hagnaður/tap, regluleg starfsemi: 2021-2025

Þróun eiginfjárhlutfalls: 2021-2025

Rekstrartekjur námu tæplega 9,4 milljörðum króna og jukust um 240 milljónir króna milli ára eða 2,6%. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar lækkuðu tekjurnar á hinn bóginn um 1,4% að raunvirði milli ára. Tekjur af auglýsingum og kostun voru tæplega 2,6 milljarðar og stóðu í stað í krónum talið en lækkuðu að raunvirði milli ára.

Rekstrargjöld námu 9 milljörðum króna á síðasta ári. Þar af voru laun og launatengd gjöld 3,9 milljarðar. Launakostnaður stóð nánast í stað milli ára og lækkaði að raungildi sem fyrst og fremst má rekja til fækkunar stöðugilda úr 275 í 269 milli ára. Annar rekstrarkostnaður, að frátöldum afskriftum, nam 4,6 milljörðum króna og lækkaði um 4% að raunvirði milli ára.

TVEIR ÞRIÐJU HLUTAR TEKNA RÚV ERU ÞJÓNUSTUTEKJUR

LAUNAKOSTNAÐUR ER UM 43% AF REKSTRARGJÖLDUM RÚV

EFNAHAGUR

Í árslok 2025 námu heildareignir rétt um 10 milljörðuma króna. Þar af nema varanlegir rekstrarfjármunir um 4,8 milljörðum króna. Á síðastliðnum tveimur árum hefur dregið úr varanlegum rekstrarfjármunum um 3% þar sem fjárfesting hefur ekki haldið í við afskriftaþörf.

 

Sýningarréttur er um þriðjungur eigna félagsins og nam ríflega 3,2 milljörðum króna í lok árs. Sýningarréttur jókst á milli ára vegna langtímasamninga um íþróttaefni. Birgðir af öðru dagskrárefni en íþróttaefni lækkuðu á hinn bóginn um 10% milli ára sem að hluta má rekja til bættrar umgjarðar um birgðastjórnun og innkaup síðastliðin tvö ár. Handbært fé jókst á milli ára um 97 milljónir króna þegar tekið hefur verið tillit til skammtímaskulda við lánastofnanir og fyrirframinnheimtra tekna undir lok árs.

 

Skuldir félagsins í árslok námu tæplega 8,4 milljörðum króna í lok árs og jukust um 154 milljónir króna milli ára. Langtímaskuldir jukust um 70 milljónir króna vegna verðlagshækkana umfram afborganir af verðtryggðum skuldum félagsins. Þá jukust aðrar fjárskuldir um 196 milljónir króna sem fyrst og fremst má rekja til aukningar í sýningarrétti á íþróttaefni. Eigið fé í árslok nam ríflega 1,6 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfallið var 16,3% í árslok 2025 og lækkaði um 1,1% milli ára.

* eignir og skuldir 2025 hafa verið leiðréttar fyrir fyrirframinnheimtum tekjum úr ríkissjóði í lok árs 2025

SJÓÐSTREYMI

Undanfarin misseri hefur verið lögð áhersla á að bæta sjóðstýringu félagsins og hefur sjóðstaðan batnað um u.þ.b. 240 milljónir króna á síðastliðinum tveimur árum þegar tekið er tillit til skammtímaskulda við lánastofnanir. Handbært fé í árslok 2025 nam tæplega 100 milljónir króna í lok árs 2025 þegar leiðrétt hefur verið fyrir fyrirframinnheimtu framlagi ríkisins í lok ársins.

 

Vaxtagreiðslur (nettó) og fjármögnunarhreyfingar drógust saman milli ára en á móti voru fjárfestingar auknar á síðasta ári.

*hér eru skammtímaskuldir við lánastofnanir dregnar frá og leiðrétt fyrir fyrirframinnheimtum tekjum frá ríkissjóði í lok árs 2025

FRAMTÍÐARHORFUR

Markmið stjórnar hefur verið að rekstur RÚV sé ávallt yfirvegaður og hallalaus og einnig að sjóðstaða félagsins sé jákvæð í árslok. Bæði þessi markmið náðust á síðasta ári.

Til lengri tíma litið þarf að tryggja að rekstur félagsins sé sjálfbær. Í því felst að skuldsetning félagsins sé viðráðanleg og lausafjárstaðan með þeim hætti að félagið geti mætti óvæntum áföllum í rekstri. Skuldir RÚV hafa um árabil verið miklar, m.a. vegna uppgjörs á eldri lífeyrisskuldbindingum. Í því sambandi er vakin athygli á því að í lok árs 2025 kynnti menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sérstaka aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla. Fimm aðgerðanna snúa með beinum hætti að starfsemi RÚV og ljóst að a.m.k. tvær þeirra munu hafa umtalsverð fjárhagsleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins þegar þær koma til framkvæmda. Annars vegar er gert ráð fyrir að skilgreindu hlutfalli af auglýsingatekjum RÚV verði veitt inn í stuðningskerfi einkarekinna fjölmiðla sem mun að óbreyttu fela í sér tekjusamdrátt fyrir félagið. Á móti verði hins vegar kannað hvort mögulegt sé að ríkissjóður yfirtaki lán vegna uppgjörs eldri lífeyrisskuldbindinga og lækka þannig fjármagnsgjöld félagsins. Unnið er að nánari útfærslu á framangreindum ráðstöfunum og er ekki ráðgert að þær komi til framkvæmda fyrr en 1. janúar 2027 og hafi áhrif á rekstur og efnahag félagsins frá og með þeim tíma.

 

Önnur stór áskorun liggur í tekjuþróun félagsins. Tekjustofnar RÚV eru þríþættir þ.e. framlög úr ríkissjóði (68%), auglýsingatekjur (27%) og aðrar tekjur (5%) s.s. vegna leigu á húsnæði, aðstöðuleiga á sendastöðum, sala á safnaefni o.fl. Undanfarinn áratug hafa framlög ríkisins og tekjur af auglýsingum ekki haldið í við þróun launa og verðlags. Það hefur leitt til þess að fjármögnun á starfsemi RÚV af þessum tveimur megin tekjustofnum hefur rýrnað um tæplega 10% á föstu verðlagi eða sem svarar til tæplega 1 milljarðs króna. Þessi samdráttur í fjármögnun hefur verið viðvarandi verkefni stjórnenda félagsins frá stofnun þess og haldi hún áfram mun það hafa áhrif með einum eða öðrum hætti á starfsemi RÚV fram á veginn.

 

RÚV SALA

AUGLÝSINGAR OG KOSTUN

Tekjur RÚV sölu á rekstrarárinu 2025 af sölu auglýsinga og kostana námu 2.560 milljónum króna.

 

Eftirtaldir dagskrárliðir voru kostaðir á árinu:

Bikarkeppni í handbolta, bikarkeppni í fótbolta, bikarkeppni í körfubolta, bikarkeppni í blaki,  Eurovision og Söngvakeppnin,  EM og HM í frjálsum, HM á skíðum, EM og HM í handbolta, EM í fótbolta, EM í sundi, EM í körfubolta, Felix og Klara,  Íslandsmótið í golfi, Landsleikir í fótbolta, Landsleikir í handbolta, Landsleikir í körfubolta, Vigdís, Reykjavíkurleikarnir, Skólahreysti og  Tónaflóð.

 

 

Eftirtaldir dagskrárliðir voru rofnir með auglýsingahléum á árinu:

Alla leið, Bræðslan, Edduverðlaunin, Eurovision, Vikan með Gísla Marteini, Gettu betur, Íþróttamður ársins, stórmót í íþróttum, Klassíkin okkar, afmælistónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands,  Reykjavíkurleikarnir,  Skrekkur, Skólahreysti, Söngvakeppnin, Söngkeppni framhaldsskólanna,  Söfnunarútsending og Tónaflóð.

 

RÚV sala er dótturfélag RÚV sem heldur utan um sölu auglýsinga og kostana.