Orð ársins 2023 er gervigreind

Orð ársins 2023 er gervigreind

Á sama tíma og Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2023 voru afhentar var tilkynnt um orð ársins sem hlutendur RÚV völdu. Það var orðið gervigreind og það var einnig valið sem orð ársins hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Aðeins einu sinni áður hefur orð ársins verið það sama hjá Ríkisútvarpinu og Árnastofnun en það var orðið var hamfarahlýnun árið 2019. 

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nefnir í tengslum við gervigreind. „Undanfarin ár hefur ný gervigreindartækni sem byggist á marglaga tauganetum vakið mikla athygli. Tauganetin eru stærðfræðilíkön sem geta geymt og unnið með myndir eða texta. Myndirnar eða textinn eru þá greind í eindir sem hægt er að staðsetja í netinu með vigurreikningi. Mest áberandi eru annars vegar líkön sem vinna með myndir og hins vegar líkön sem vinna með texta.“ 

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.