París norðursins segir frá Huga, sem hefur fundið skjól frá flækjum lífsins í litlu, kyrrlátu þorpi úti á landi, sækir AA-fundi, lærir portúgölsku og kann ágætlega við sig í fásinninu. Þegar hann fær símhringingu frá föður sínum sem boðar komu sína er hið einfalda líf skyndilega í uppnámi.