Betra aðgengi að þjónustu RÚV með nýrri valmynd

Betra aðgengi að þjónustu RÚV með nýrri valmynd

Valmyndin á RÚV.is var uppfærð til að gera efni RÚV aðgengilegra fyrir notendur og alla þjónustu RÚV auðsóttari. Eitt af markmiðunum með nýrri valmynd var að gera Spilaranum hærra undir höfði með því að stytta leiðir í beinar útsendingar og það helsta sem Spilarinn hefur upp á að bjóða af öllum vefnum.

„Þessar breytingar er liður í því að gera fólki auðveldara að rata um vefinn og komast þangað sem það langar í færri smellum,“ segir Birgir Þór Harðarson, vefstjóri RÚV, um breytingarnar. „Bara það að geta fundið beinu straumana og yfirlit yfir þetta helsta í spilaranum – hvaðan sem er á vefnum – hjálpar fólki vonandi að nota RÚV,“ segir hann.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.