Tölur frá miðlum

121.000

Fylgja fréttastofu á TikTok

74.000

Fylgja RÚV á Facebook

23.328

Fréttir birtar á ruv.is

257

Fréttavaktir á ruv.is

Stafræn þróun

Á vef RÚV er hægt að lesa fréttir á auðskildu máli (ruv.is/audskilid). Fréttakerfi RÚV er tengt við gervigreindartól frá Miðeind og með aðstoð gervigreindar er hægt að birta fleiri fréttir á auðskildu máli. Með þessu er aðgengi að fréttum stóraukið fyrir þá sem vilja fréttir á einföldu formi. Þjónustan er ætluð fólki með þroskahömlun en nýtist einnig lesblindu fólki og kemur sér vel fyrir byrjendur og fólk sem er skammt á veg komið í íslenskunámi.

 

RÚV Orð (ord.ruv.is) er ætlað til sjálfsnáms í íslensku með notkun sjónvarpsefnis RÚV. Lausnin er afrakstur samstarfs við Språkkraft, óhagnaðardrifið sænskt félag sem hefur sérhæft sig í hönnun máltæknilausna. Vefurinn bætir aðgengi allra aldurshópa að fjölbreyttu efni til að læra íslensku.

Sjálfvirk textun með beinum útsendingum á völdum dagskrárliðum jókst á árinu. Hún var þegar komin á aukafréttatíma og kosningaumfjöllun. Með þessu er aðgengi að íslensku efni fyrir alla landsmenn aukið. Verkefnið er fólgið í samþættingu sjálfvirkrar textunar frá máltæknifyrirtækinu Tiro við innri kerfi RÚV. Sjálfvirk textun verður sett á fleiri dagskrárliði til að auka þjónustu við notendur.

 

Á innri vef RÚV er birt mælaborð sem sýnir samsetningu viðmælenda út frá kyni, aldri og búsetu, bæði fyrir miðla og tiltekna sjónvarps- og útvarpsþætti. RÚV leggur áherslu á að mæla og greina gögn um viðmælendur til að tryggja sem fjölbreyttasta samsetningu þeirra.

Samfélagsmiðlar

RÚV hélt áfram að vaxa á samfélagsmiðlum árið 2025. Meira efni var framleitt sérstaklega fyrir samfélagsmiðla en áður og var verulegur munur á áhorfi og fylgjendum á öllum miðlum.

 

Facebook er stærsti samfélagsmiðill RÚV. Nýir fylgendur árið 2025 voru 5575, sem er 88% aukning miðað frá 2024. Áhorf á efni var samtals 53,2 milljónir. Instagram-síður RÚV héldu áfram að vaxa. Áherslan á að deila fleiri myndskeiðum úr sjónvarpsefni og það skilaði góðum árangri. Samtals var 890 myndböndum deilt á þeim miðli. Fylgjendur á Instagram eru 33 þúsund og fjölgaði um 5737 frá fyrra ári. Síðustu sex mánuði ársins var áhorf á efni samtals 9,5 milljónir.

 

Notkun á TikTok-aðgangi RÚV jókst mjög mikið. Áhorf árið 2025 jókst um 165%, útbreiðsla um 204% og viðbrögð við efni um 172% frá fyrra ári. Nýir fylgjendur á árinu voru 8543, sem er 201% aukning frá 2024. Aðgangurinn er í heildina með 24.100 fylgjendur. Unga fólkið nýtir þennan miðil mest og 56% þeirra sem líka við, deila og setja athugasemd við efni RÚV á TikTok eru 18-24 ára.

Vefur

Notandinn ræður ferðinni þegar kemur að þjónustu RÚV á vefnum. Þessi þjónusta er aðgengileg allan sólarhringinn, allan ársins hring og henni er ætlað að bjóða upp á efni sem höfðar til allra Íslendinga nær og fjær.

 

Fjölmiðlaneysla fólks breytist ár frá ári og RÚV lagar sig að því hvert notendur vilja sækja fjölmiðlaefni. RÚV.is er hnúturinn sem bindur alla þræðina saman, hvort sem það eru klassísk miðlun sjónvarps og útvarps eða spánnýir samfélagsmiðlar og hlaðvörp.  Fréttir eru helsta aðdráttaraflið á RÚV.is. Öll umferðartölfræði sýnir að fréttir eru mikilvægasta þjónusta RÚV í huga almennings. Fréttir eru í öndvegi á forsíðu vefsins, jafnt af innlendum sem erlendum vettvangi, menningu, dægurmálum og íþróttum.

 

Þegar stórir atburðir verða leitar fólk á RÚV.is hvar sem það er statt. Þá og á hverjum einasta degi ársins RÚV til þjónustu reiðubúið með glæný tíðindi á vefnum, fréttaskýringar og umfjöllun um það sem brennur helst á fólki. Á árinu birtust yfir 23 þúsund fréttir og á þriðja hundrað fréttavaktir á RÚV.is.

 

Fréttaþjónusta á RÚV.is er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku, auk íslensku á auðskildu máli fyrir þá sem þurfa einfaldari upplýsingar til þess að taka þátt í samfélaginu. Til viðbótar veitir spilari RÚV aðgang að einu stærsta safni þjóðfélags- og menningarumfjöllunar á Íslandi í hljóði og mynd. Þar er eitthvað fyrir fólk á öllum aldri.

Tölfræði

  • 23.328 fréttafærslur birtar á árinu 2025 – þar af 257 lifandi fréttavaktir.
  • 193 titlar í innlendum fréttum
  • 368 titlar í erlendum fréttum
  • 950 titar í menningu og dægurmálum
  • 591 titill í íþróttum
  • 234 titlar á ensku
  • 686 titlar á pólsku
  • 64 titlar á dag að jafnaði, allan ársins hring