Í upphafi ársins 2025....
08.01.2025

Hraunkælingarstjóri orð ársins í menningarviðurkenningum RÚV

Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar í byrjun árs. Áslaug Jónsdóttir hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs RÚV og Birnir Jón Sigurðsson hlaut hvatningarverðlaun sjóðsins. Mugison hlaut Krókinn fyrir framúrskarandi lifandi flutning og “hraunkælingarstjóri” var orð ársins. Auk þess var tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu.  „Viðurkenninguna hlýtur Áslaug fyrir fjölbreytt verk sín og framlag til íslenskra bókmennta, barnamenningar og myndlistar. Áslaug er fjölhæfur listamaður en auk þess að skrifa bækur sem eiga sér aðdáendur á öllum aldri, hérlendis og víða um veröld, er hún mikilvirkur myndskreytir og hönnuður”, segir meðal annars í rökstuðningi dómnefndar um verk Áslaugar. Um Birni Jón Sigurðsson segir meðal annars: „Viðurkenninguna hlýtur Birnir fyrir að vinna jöfnum höndum með texta, leikhús og kvikmyndir sem bæði rit- og sviðshöfundur, leikstjóri og flytjandi og hefur komið að skipulagi og framkvæmd margskonar lista- og menningarviðburða á undanförnum árum,...”. Örn Elías Guðmundsson eða Mugison hlaut Krókinn 2024 – viðurkenningu Rásar 2, fyrir óvenjulegt tónleikaferðalag þar sem Mugison spilaði í 100 kirkjum víðsvegar um landið.  

20.02.2025

Elín Hall tók þátt í stærsta útvarpsþætti Evrópu

Rás 2 tók þátt í stærsta útvarpsþætti Evrópu "Europe's Biggest Gig” sem BBC Radio 1 stóð að í samstarfi við EBU – Samband evrópskra útvarpsstöðva.  Þátturinn var sendur út á fimm ríkisstöðvum í Evrópu og náði til margra milljóna hlustenda. Auk BBC Radio 1 í Bretlandi tóku RTE 2FM á Írlandi, VRT Studio Brussel í Belgíu, WDR 1Live í Þýskalandi og Rás 2 þátt í verkefninu.  Markmið þáttarins var að kynna það sem er í gangi á tónlistarsviðinu í hverju landi fyrir sig og hver stöð fékk 30 mínútur til þess. „Rás 2 hefur lengi verið í fararbroddi þegar kemur að því að kynna íslenska tónlist hér heima en hlutverk Rásar 2 í alþjóðasamstarfi á vettvangi EBU er einnig mikilvægt en þar gefast okkur tækifæri á að kynna íslenska tónlist fyrir evrópskum hlustendum, m.a. á hverju ári á Eurosonic tónlistarhátíðinni í Hollandi. Þessi þáttur er liður í því að gera enn meira og betur í þeim málum, að breiða út boðskapinn um íslenska tónlist sem víðast,” sagði Sigurður Þorri Gunnarsson tónlistarstjóri Rásar 2 af þessu tilefni. 

21.02.2025

Ævintýrajóga

Á KrakkaRÚV var sýnd ný þáttaröð undir heitinu Ævintýrajóga sem ætlað var að hvetja börn til hreyfingar, djúpslökunar og sköpunar í gegnum leik og ævintýri. Umsjónarmaður var Þóra Rós Guðbjartsdóttir sem byrjaði að þróa hugmyndina í covid-faraldrinum þegar hún leitaði að íslensku jógaefni fyrir sín eigin börn og komst að því að úrvalið var lítið. Þá kviknaði hugmyndin að Ævintýrajóga. „Mig langaði að gera jóga spennandi fyrir börn og búa til heim þar sem þau geta leikið sér, róað hugann og hreyft sig á sama tíma. Jóga hjálpar okkur að taka hlé frá daglegu amstri og börn þurfa það alveg eins og við!“ segir Þóra Rós. Í hverjum þætti var nýtt ævintýri þar sem börnin tóku þátt í æfingum sem örvuðu bæði ímyndunarafl og vellíðan.  

25.02.2025

Útsendingu um gervihnött var hætt í lok maí

Stjórnvöld stóðu um nokkurt skeið fyrir stafrænni hljóðvarps- og sjónvarpsútsendingu dagskrár RÚV um gervihnött. Í ársbyrjun lá fyrir að þessum útsendingum yrði hætt í lok maí. Dreifingin hefur einkum nýst sjófarendum en vegna tæknibreytinga nálgast mikill meirihluti efnið nú með öðrum hætti þar á meðal með útsendingum RÚV um UHF loftnet, 4G farnet og nettengingar frá gervihnöttum. Einnig er hægt að ná góðri nettengingu í gegnum Starlink-gervihnetti. Fyrirsjáanlegt er að það net muni þéttast og styrkjast á næstunni. Þá dreifa þjónustuaðilar efni RÚV til sjófarenda um þar til gerðan netbúnað. Til þess að koma betur til móts við sjófarendur var útbúinn sérstakur IP-straumur fyrir beint streymi þar sem efni er þjappað þannig að auðveldara sé að taka við því þar sem nettengingar eru takmarkaðar eða gagnamagn dýrt. Útsendingar um gervihnött voru ekki hluti af verkefnum RÚV samkvæmt lögum eða þjónustusamningi. Stjórnvöld fjármögnuðu þjónustuna um árabil með sérstakri fjárveitingu en hún var felld niður í hagræðingarskyni fyrir þremur árum. Frá þeim tíma stóð RÚV straum af kostnaðinum.

12.03.2025

Freyr og Eva hlutu blaðamannaverðlaunin

Freyr Gígja Gunnarsson, fréttamaður á RÚV, hlaut blaðamannaverðlaun ársins sem voru þann 12. mars. Freyr var verðlaunaður fyrir fréttaskýringar sínar í Speglinum, en í umsögn dómnefndar sagði að Freyr hefði sýnt einstaka þrautseigju í að krefja stjórnvöld um svör í stórum málum. Það hefði kjarnast í umfjöllun hans um samskipti ráðamanna í aðdraganda brottflutnings Yazan Tamimi. Eva Björk Benediktsdóttir, fréttamaður á RÚV, var verðlaunuð fyrir viðtal árins, fyrir viðtal sem hún tók við Hafdísi Báru Óskarsdóttur sem varð fyrir lífshættulegri árás af hendi barnsföður síns.

19.03.2025

Krakkar sögðu Krakkafréttir

Krakkafréttir fengu tíu unglinga í 8.-10. bekk til að flytja fréttir frá barnamenningarhátíð í Reykjavík sem haldin var 8.-13. apríl. Vikuna á undan, 31. mars - 6. apríl, hélt KrakkaRÚV þriggja daga námskeið fyrir þessa ungu verðandi fréttamenn, þar sem farið var yfir grunnatriði í fréttamennsku allt frá viðtalstækni til tæknilegra atriða á borð við myndbandsupptökur og klippingu. Á sjálfri hátíðinni tók hópurinn upp fréttir og vann þær í sameiningu undir leiðsögn KrakkaRÚV. RÚV hafði svo beina útsendingu frá opnunarviðburði Barnamenningarhátíðar sem var í Eldborgarsal Hörpu 8. apríl.

23.04.2025

Eva Georgs Ásudóttir ráðin í starf dagskrárstjóra sjónvarps

Eva Georgs Ásudóttir var ráðin í starf dagskrárstjóra sjónvarps hjá Ríkisútvarpinu. Starfið var auglýst í mars og bárust alls 28 umsóknir en fimm drógu umsókn sína til baka. Eva hefur meira en tuttugu ára reynslu af störfum við fjölmiðla, þar af um fimmtán ár í stjórnunarhlutverkum. Áður en hún kom til starfs hjá RÚV var hún sjónvarpsstjóri hjá Sýn þar sem hún leiddi 75 manna teymi og bar ábyrgð á rekstri, stefnumótun og dagskrá Stöðvar 2, Stöðvar 2+ og Stöðvar 2 Sport. Áður var hún meðal annars framleiðslustjóri innlendrar þáttagerðar hjá Stöð 2, framleiðslustjóri fréttastofu og veitti allri sjónvarpsframleiðslu 365 miðla forstöðu auk þess að vera yfirframleiðandi stórra verkefna á borð við Idol. Eva er með menntun á sviði stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands ásamt meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskólanum í Reykjavík.

30.04.2025

Betri streymisþjónusta þar sem nettenging er hæg

Gerðar voru ráðstafanir til að gera notendum RÚV kleift að horfa á sjónvarpsútsendingar á vefnum með minna gagnamagni en áður. Þetta var gert til að bæta þjónustu RÚV þar sem háhraðanets nýtur ekki við. Þetta á við um svæði þar sem nettengingar eru hægar, til dæmis á skuggasvæðum við þjóðveginn, í óbyggðum og á sjó. Þar getur verið gagnlegt að hafa aðgengi að útsendingu RÚV sem krefst minna gagnamagns. Áhorfendur RÚV sem hafa ekki kost á góðri nettengingu eða kjósa að nota minna gagnamagn geta nú valið að horfa á beina útsendingu sjónvarpsins með lágri bandvídd. Bandvídd er hugtak sem notað er yfir flutningsgetu nettengingar. Til þess að velja minni bandvídd þarf að smella á hnappinn „Horfa á RÚV í lágri bandvídd“ neðst við hægra hornið á spilaranum.

06.05.2025

Nýr veðurvefur tekin í notkun

Nýr veðurvefur á RÚV.is var tekinn í notkun með sjálfvirkri veðurspá og veðurupplýsingum frá Veðurstofunni sem eru uppfærðar stöðugt. Lögð er áhersla á að greina frá veðurspánni á myndrænan hátt og sýna þróun veðurspárinnar fram í tímann. Þetta er aukin þjónusta við notendur RÚV sem geta einnig séð veðurfréttir á vefnum, hlustað á veðurfregnir í útvarpi og horft á veðurspá með kvöldfréttum í sjónvarpi. Veðurviðvaranir Veðurstofunnar eru birtar með sérstökum hætti á veðurvefnum, bæði á forsíðu veðurvefsins og við hverja veðurstöð innan þeirra svæða þar sem varað er við slæmu veðri. Á veðurvefnum eru allar veðurstöðvar Veðurstofunnar og upplýsingum frá þeim er miðlað með gagnastreymi til RÚV. Veðurupplýsingarnar eru uppfærðar reglulega svo nýjasta veðurathugun og veðurspá sé sýnileg hverju sinni.

24.06.2025

Táknmálstúlkaðar fréttir á RÚV.is

Fréttir hafa verið sagðar á táknmáli í sjónvarpinu á hverjum degi síðan 1980. Þá fyrst fékk döff fólk á Íslandi aðgang að fréttum á móðurmáli sínu. Það urðu hins vegar nær engar breytingar á fyrirkomulagi táknmálsfrétta frá því þær voru fyrst sagðar og þar til kórónuveirufaraldurinn hófst árið 2020. Síðan þá hafa kvöldfréttir í sjónvarpi verið táknmálstúlkaðar í beinni útsendingu samhliða útsendingu frétta á aðalrás RÚV. Táknmálstúlkunin hefur verið send út á RÚV 2 ýmist í beinni útsendingu eða seinkaðri dagskrá. Þegar túlkunin hefur verið í seinkaðri dagskrá hefur beina útsendingin verið á RÚV.is. Um mitt ár urðu þær breytingar á fréttaþjónustu RÚV á táknmáli að hún er alltaf í beinni útsendingu á RÚV.is óháð því hvort það sé dagskrá á RÚV 2. Táknmálstúlkunina er núna alltaf að finna á sama stað á forsíðu vefsins. Sama hvort útsendingin er á RÚV 2 eða á vefnum þá er hlekkinn að finna ásamt öðrum hlekkjum á útsendingar RÚV.

22.08.2025

Tvö íslensk útvarpsverk tilnefnd til Prix Europa-verðlauna

Útvarpsverkin Hvar er Jón? og Þau sjá okkur ekki í myrkrinu voru tilnefnd til hinna virtu Prix Europa-verðlauna sem eru árlega veitt fyrir framúrskarandi sjónvarps- og útvarpsefni frá Evrópu. Þáttaröðin Hvar er Jón er skrifuð og framleidd af Önnu Marsibil Clausen og Liam O’Brien um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar, rúmlega fertugs fjölskyldumanns sem ekkert hefur spurst til síðan hann yfirgaf hótel í Dyflinni árið 2019. Kristín Eiríksdóttir rithöfundur settist niður með Ahmed Almamlouk og Fadiu Redwan sem flúðu til Íslands frá Gaza og Khalid Omer túlkur gerði þeim kleift að tala saman. Úr varð útvarpsleikverkið Þau sjá okkur ekki í myrkrinu.

24.09.2025

KrakkaRÚV hlaut heiðursverðlaun UngRIFF árið 2025

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs veitti heiðursverðlaun UngRIFF þann 24. september. Ungmennaráð hátíðarinnar valdi vinningshafann, í ár hlaut KrakkaRÚV verðlaunin fyrir framlag sitt til íslenskrar barnamenningar.

07.10.2025

KrakkaRÚV fagnar 10 ára afmæli

Fyrir 10 árum eða þann 7. október árið 2015 var KrakkaRÚV kynnt til sögunnar í fyrsta sinn, um var að ræða nýjan ævintýraheim þar sem börn gátu nálgast endalaust úrval af framúrskarandi efni af ólíku tagi og allt á íslensku. KrakkaRÚV er yfirheiti allrar þjónustu RÚV við börn; hvort sem er í sjónvarpi, útvarpi eða á vefnum. KrakkaRÚV hefur vaxið og dafnað á þessum tíu árum sem liðin eru. Til hamingju með 10 ára afmælið KrakkaRÚV.

14.10.2025

Leiðin til okkar var yfirskrift Útvarpsþings 2025

Ríkisútvarpið hélt sitt árlega útvarpsþing, fimmtudaginn 23. október í Útvarpshúsinu. Yfirskriftin var Leiðin til okkar og aðal umræðuefnið var hvernig dreifingu efnis fjölmiðla yrði háttað í framtíðinni og hvernig fólk muni nálgast efni fjölmiðla. Efnið var rætt út frá ýmsum tæknilegum og lögfræðilegum hliðum og frá mismunandi viðtökumöguleikum notenda. Fyrirlesarar voru Richard Waghorn, yfirtæknistjóri írska ríkisútvarpsins RTÉ, Halldóra Þorsteinsdóttir héraðsdómari, Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netvís, Gunnar Sigurjónsson framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Sýnar, Logi Karlsson framkvæmdastjóri Tækniþróunar Símans og Hrefna Lind Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar RÚV.

29.10.2025

Betra aðgengi að þjónustu RÚV með nýrri valmynd

Valmyndin á RÚV.is var uppfærð til að gera efni RÚV aðgengilegra fyrir notendur og alla þjónustu RÚV auðsóttari. Eitt af markmiðunum með nýrri valmynd var að gera Spilaranum hærra undir höfði með því að stytta leiðir í beinar útsendingar og það helsta sem Spilarinn hefur upp á að bjóða af öllum vefnum. „Þessar breytingar er liður í því að gera fólki auðveldara að rata um vefinn og komast þangað sem það langar í færri smellum,“ segir Birgir Þór Harðarson, vefstjóri RÚV, um breytingarnar. „Bara það að geta fundið beinu straumana og yfirlit yfir þetta helsta í spilaranum – hvaðan sem er á vefnum – hjálpar fólki vonandi að nota RÚV,“ segir hann.

03.12.2025

Sjónvarpsfréttir í nýjum búningi á 95 ára afmæli Ríkisútvarpsins

Útliti sjónvarpsfrétta var breytt í byrjun desember í kjölfar endurskoðunar á fréttaþjónustu í sjónvarpi og umfangsmikilla breytinga sem urðu í nokkrum skrefum. Sjónvarpsfréttatímum var fækkað eftir að hætt var að senda út 22-fréttir fjóra daga vikunnar en aðrir sjónvarpsfréttatímar voru ýmist lengdir eða styttir frá því sem áður var. Með breytingunum var meiri áhersla lögð á lifandi og fjölbreytta framsetningu frétta, á fréttaskýringar í sjónvarpsfréttum og að fjalla um flókin mál frá mörgum hliðum. Samhliða breytingum á fréttum í sjónvarpi var ákveðið að efla fréttavakt á ruv.is með það að markmiði að færa almenningi áreiðanlegar fréttir hraðar og ekki síður að skýra mikilvæg fréttamál hverju sinni. Hluti af þessari stefnumörkun er einnig að styrkja miðlun frétta og fréttaskýringa RÚV á samfélagsmiðlum, þar sem stöðug aukning hefur verið í áhorfi eftir því sem breytingar hafa orðið í fjölmiðlaneyslu.

08.12.2025

Jólakveðjur unga fólksins í fyrsta sinn á Rás 2

Bryddað var upp á þeirri nýjung að bjóða ungu fólki að senda jólakveðjur sem voru lesnar á Rás 2. Hingað til hafa jólakveðjur aðeins verið lesnar á Rás 1. Bræðurnir Matthías Davíð og Hálfdán Helgi Matthíassynir í VÆB lásu kveðjurnar eftir kvöldfréttir klukkan 18 á Þorláksmessu. „Það mega bara allir senda kveðju til hvers sem er og við verðum bara hérna tilbúnir til starfa að lesa þær,“ segir Hálfdán.

31.12.2025

Meira en 800 ný íslensk lög voru kynnt á Rás 2

Samkvæmt tónlistarstefnu RÚV á að lágmarki 40% af leikinni tónlist á Rás 2 að vera íslensk. Þegar 100 mest spiluðu lög ársins 2025 eru skoðuð var hlutfall íslenskrar og erlendar tónlistar jafnt. Þá kemur einnig fram í stefnunni að gætt skuli að kynjahlutfalli en það var sömuleiðis jafnt á listanum yfir 100 mest spiluðu lögin. Að venju skipaði plata vikunnar stórt hlutverk í dagskrá Rásar 2 en 50 nýjar íslenskar plötur voru teknar fyrir og kynntar með þætti um hverja plötu, innslögum í dagskrá og loks plötudómi. Þá voru þættir á borð við Undirölduna og Ólátagarð mikilvægir í kynningu á nýrri íslenskri tónlist en um og yfir 800 ný íslensk lög voru kynnt á Rás 2 í fyrra, bæði í fyrrnefndum þáttum sem og öðrum tónlistarþáttum á stöðinni. Þá má geta þess að á árinu voru 14.539 einstakir titlar spilaðir á Rás 2 (einstakur titill er lag sem er leikið a.m.k. einu sinni frá 1. janúar til 31. desember 2025) og það er til marks um þá miklu fjölbreytni sem einkennir tónlistarval á Rás 2.

... árið á enda.