Útvarpsþing 2024: Fjölmiðlar og fræðsla

Útvarpsþing 2024: Fjölmiðlar og fræðsla

Fjölmiðlar og fræðsla var yfirskrift Útvarpsþings RÚV 2024 sem haldið var í Útvarpshúsinu 3. október. Inngangsfyrirlestur flutti Kalle Sandhammar, forstjóri UR Utbildningsradion í Svíþjóð, sem framleiðir sjónvarpsog útvarpsefni fyrir skóla og almenning Aðrir fyrirlesarar voru Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Elfa Lilja Gísladóttir verkefnastjóri Listar fyrir alla, Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, Ingunn Lára Kristjánsdóttir fréttamaður og verkefnastjóri, Tinna Steindórsdóttir kennari í Brekkubæjarskóla á Akranesi og Skúli Bragi Geirdal verkefnisstjóri hjá Fjölmiðlanefnd. Auk þess kynntu Hafsteinn Vilhelmsson og Þorgeir Ólafsson UngRÚV og MenntaRÚV. Útvarpsþingi lauk svo með pallborðsumræðum. 

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.