Stefán Eiríksson endurráðinn útvarpsstjóri til næstu fimm ára

Stefán Eiríksson endurráðinn útvarpsstjóri til næstu fimm ára

Stjórn Ríkisútvarpsins ohf. hefur ákveðið endurráða Stefán Eiríksson í stöðu útvarpsstjóra til fimm ára, í samræmi við heimild í 11. gr. laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu. Stefán Eiríksson var ráðinn útvarpsstjóri í janúar 2020 af stjórn Ríkisútvarpsins ohf. og tók til starfa 1. mars það ár. Samkvæmt 11. gr. laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, skal útvarpsstjóri ráðinn til fimm ára í senn og er heimilt endurráða hann einu sinni. Stjórn Ríkisútvarpsins ohf. ákvað á fundi sínum í um miðjan október nýta þessa heimild, eftir hafa óskað eftir og farið yfir greinargerð útvarpsstjóra þar sem hann gerði stjórn grein fyrir áherslum sínum og framtíðarsýn til næstu ára, fengi hann til þess umboð stjórnar. 

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.