
30 Nov Kosningaumfjöllun RÚV
Kosningaumfjöllun RÚV vegna Alþingiskosninga í nóvember 2024 var fjölbreytt og ítarleg. Umfjöllunin var á sérstökum kosningavef, í sjónvarpi, útvarpi og samfélagsmiðlum. Hún hófst 1. nóvember með leiðtogaumræðum í sjónvarpssal og þeir hittust aftur í sjónvarpssal daginn fyrir kosningarnar 29. nóvember.
Þá voru ítarleg sjónvarpsviðtöl við forystumenn stjórnmálaflokka í þáttunum Forystusætið, haldnir voru kjördæmafundir með oddvitum allra framboða, málefnaþættir í Kastljósi og málefnaumfjöllun á vef, í hlaðvarpi og útvarpi. Opnaður var kosningavefur þar sem fólk gat borið skoðanir sínar saman við stefnumál flokkanna og að auki var kosningaumfjöllun á samfélagsmiðlum RÚV. Kosningavaka var í sjónvarpi og útvarpi að kvöldi kjördags, 30. nóvember og kosningauppgjör í sjónvarpssal um hádegisbil 1. desember með þátttöku formanna flokka sem náðu kjöri til Alþingis.
Sorry, the comment form is closed at this time.