FLOTT vann Jólalagakeppni Rásar 2

FLOTT vann Jólalagakeppni Rásar 2

Lagið Ó, Grýla taktu þér tak með hljómsveitinni FLOTT sigraði í Jólalagakeppni Rásar 2. Lagið var samið af Ragnhildi Veigarsdóttur og Vigdísi Hafliðadóttur og er vísun í jólalagið Ó, Grýla sem Ómar Ragnarsson gerði frægt á sínum tíma. Lagið er ákall til Grýlu í von um að hún breyti viðhorfi sínu til barna. 

Ragnhildur segist hafa búið til undirspilið fyrir að verða tveimur árum og þá hafi Vigdís fengið þá hugmynd að nota það í jólalag sem hún vildi að fjallaði um Grýlu sjálfa. „Lag sem stendur með börnunum, segir henni að hætta að borða börn – sem er kannski hægt að túlka á mismunandi hátt í samfélaginu í dag,“ segir Ragnhildur. 

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.