Jólalag Ríkisútvarpsins 2024

Jólalag Ríkisútvarpsins 2024

Jólalag Ríkisútvarpsins árið 2024 ber titilinn Augnablik um jól eftir kammerhópinn Cauda Collective. Lagið fjallar um töfrana í hversdeginum í desember; heyra marrið í snjónum, sjá jólaljósin og finna kyrrðina í hjartanu. Cauda Collective hefur lagt sig fram við leita út fyrir rammann í tónlistarflutningi sínum og leitar gjarnan leiða til túlka gamla tónlist í samtali við nútímann. Þær hafa til dæmis gefið út plötuna Adest Festum, sem er þeirra eigin túlkun á Þorlákstíðum og samið tónverk sem byggir á tíðasöngvum Úrsúlu eftir Hildegard von Bingen. Hópinn skipa Sigrún Harðardóttir á fiðlu, Þóra Margrét Sveinsdóttir á víólu, Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló og Björk Níelsdóttir sópran. 

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.