Vínilplata þessarar viku er Fjórtán fóstbræður ásamt Ellý Vilhjálms og hljómsveit Svavars Gests. Platan, sem kom út hjá SG hljómplötum árið 1965, inniheldur átta lagasyrpur. Hún var tekin upp í Ríkisútvarpinu enda heimatökin hæg því Fjórtán fóstbræður höfðu frá árinu 1963 sungið reglubundið í útvarpsþáttunum vinsælu Sunnudagskvöldi með Svavari Gests. Raunar átti Svavar sjálfur frumkvæðið að því að fóstbræðurnir fjórtán urðu til árið 1963, og árið eftir hóf hann feril sinn sem hljómplötuútgefandi með því að gefa út plötuna Syngið með – Fjórtán fóstbræður með hljómsveit Svavars Gests. Þessi plata kom svo út ári seinna, og sló í gegn líkt og fyrsta platan.
A-hlið:
1. Syrpa af hröðum lögum - Litla Reykjavíkurmær, Komdu vina, Kenndu mér að kyssa rétt, Viltu með mér vaka í nótt og Káta Víkurmær. Lögin eru öll erlend og textarnir eftir Ragnar Jóhannsson, Þorstein Halldórsson, Skafta Sigþórsson, Valborgu Bentsdóttur og Jón frá Ljárskógum.
2. Jóns Múla-syrpa - Fröken Reykjavík, Einu sinni á ágústkvöldi, Söngur jólasveinanna, Gettu hver ég er? og Augun þín blá. Lögin öll eftir Jón Múla Árnason og hann á einnig textann í síðustu tveimur lögunum en bróðir hans Jónas Árnason samdi hina þrjá.
3. Valsa-syrpa - Ellý Vilhjálms syngur með - Kvöld við Signu, erlent lag við texta Helga Jónssonar, Hvítu mávar, erlent lag við texta Björn Braga Magnússonar, Ég líð með lygnum straumi, erlent lag við texta Eiríks Karls Eiríkssonar, Vogun vinnur - vogun tapar, erlent lag við texta Guðmundar Sigurðssonar sem á einnig textann í síðasta laginu sem er Þetta er ekki hægt eftir Árna Ísleifsson.
4. Rúmbu-syrpa - Nú liggur vel á mér eftir Óðin G. Þórarinsson við texta Núma Þorbergs, Mærin frá Mexíkó, erlent lag við texta Ólafs Gauks, Allt á floti, erlent lag við texta Jóns Sigurðssonar, Einsi kaldi úr Eyjunum, lag og texti Jón Sigurðsson og Ástarljóðið mitt, erlent lag við texta Björns Braga Magnússonar.
B-hlið:
1. Sjómannavalsa-syrpa - Vertu sæl, mey, lag og texti Ási í Bæ, Ship-o-hoj, lag Oddgeir Kristjánsson við texta Lofts Guðmundssonar, Baujuvaktin, lag Svavar Benediktsson og texti Kristján frá Djúpalæk, Síldarstúlkan, lag Árni Björnsson og texti Bjarni Guðmundsson og Sjómannavalsinn, lag Svavar Benediktsson og texti Kristján frá Djúpalæk.
2. Sigfúsar-syrpa - Við eigum samleið, Játning, bæði við ljóð Tómasar Guðmundssonar, Íslenzkt ástaljóð, ljóð Vilhjálms frá Skáholti, Tondeleyo eftir Tómas Guðmundsson og Litla flugan eftir Sigurð Elíasson. Lögin öll á Sigfús Halldórsson.
3. My Fair Lady-syrpa - Ellý Vilhjálms syngur með - Sértu hundheppinn, Yrði það ei dásamlegt, Áður oft ég hef, Ég vildi dansa í nótt og Ég á að kvænast kellu á morgun. Egill Bjarnason þýddi alla textana en tónlistin er eftir Frederick Loewe.
4. Polka-syrpa - Einu sinni var, lag Svavar Benediktsson, texti Kristján frá Djúpalæk, Piparsveinapolki, lag Guðjón Matthíasson við texta Núma Þorbergs, Kátir dagar, erlent lag við texta Jenna Jóns, Æ, Ó, aumingja ég, erlent lag við texta Ólafs Gauks og Ef leiðist mér heima, erlent lag við texta Ágústs Böðvarssonar.
Í hljómsveit Svavars Gests sem leikur undir í öllum syrpunum eru Svavar Gests á trommur, Garðar Karlsson á gítar, Grettir Björnsson á harmonikku og Reynir Sigurðsson á bassa. Bassaleikararnir Pétur Björnsson og Gunnar Pálsson koma einnig við sögu í þremur syrpum. Magnús Ingimarsson radsetti og fyrir kór og hljómsveit.
Á umslagi plötunnar má sjá fallega mynd úr garði Alþingishússins eftir Rafn Hafnfjörð. Á bakhliðinni er mynd Péturs Þorsteinssonar af fóstbræðrunum fjórtán sem syngja á plötunni. Þeir eru: Hákon Oddgeirsson, Ásgeir Hallsson, Ragnar Magnússon, Einar G. Þorsteinsson, Sigurður Jóelsson, Aðalsteinn Guðlaugsson, Einar Ágústsson, Árni Eymundsson, Jóhann Guðmundsson, Þorsteinn R. Helgason, Magnús Guðmundsson, Sigurður Símonarson, Guðmundur Helgi Guðmundsson og Garðar Jökulsson.
Umsjón: Stefán Eiríksson.