
Undir geislanum
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Túlkun í klassískri tónlist tók að breytast mikið þegar hin svonefnda upprunastefna fékk byr undir báða vængi eftir miðja 20. öld. Hún snýst um þá aðferðafræði að flytja tónlist fyrri alda því sem næst í þeim búningi sem hún hljómaði á dögum viðkomandi tónskálds. Í þættinum verður fjallað um tilurð stefnunnar og áhrif hennar. Leikin verða tóndæmi úr verkum eftir Johann Sebastian Bach, Joseph Haydn, Ludwig van Beethoven og Gustav Mahler. Umsjónarmaður: Magnús Lyngdal Magnússon.
Bach, Johann Sebastian: Mass in B Minor, I. „Cum Sancto Spiritu“. Ensemble Pygmalion / Raphaël Pichon. Útg. Harmonia Mundi.
Bach, Johann Sebastian: Mass in B Minor, I. „Cum Sancto Spiritu“. BBC Chorus, New Philharmonia Orchestra / Otto Klemperer. Útg. Warner.
Beethoven, Ludwig van: Piano Sonata No. 14, I. Adagio sostenuto. Ronald Brautigam. Útg. BIS.
Beethoven, Ludwig van: Piano Sonata No. 14, I. Adagio sostenuto. Solomon Cutner. Útg. Archipel.
Haydn, Joseph: Symphony No. 39, „Tempesta di mare“, IV. Finale: Allegro di molto. Philharmonica Hungarica / Antal Doráti. Útg. Decca.
Haydn, Joseph: Symphony No. 39, „Tempesta di mare“, IV. Finale: Allegro di molto. Il Giardino Armonico / Giovanni Antonini. Útg. Alpha.
Mahler, Gustav: Symphony No. 4, III. Ruhevoll, poco adagio. San Francisco Symphony Orchestra / Michael Tilson Thomas. Útg. San Francisco Symphony.
Mahler, Gustav: Symphony No. 4, III. Ruhevoll, poco adagio. Sinfonieorchester des SWR / Sir Roger Norrington. Útg. SWR Classic.

Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon