
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Íris Helga Jónatansdóttir er sökuð um að hafa sent skilaboð úr mörgum mismunandi aðgögnum á Messenger á fólk sem segir hana hafa áreitt sig. Hún hafi meðal annars þóst hafa verið föðuramma eins sem fékk skilaboð send til sín. Þá hefur vitni í málinu einnig sagt fölsuð gögn hluta af greinargerð Írisar Helgu. Þetta kom fram í dómsal í morgun á fjórða degi aðalmeðferðar. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fréttakona var í dómsal og kíkti til okkar.
Söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum verður frumsýndur um helgina. Uppselt er á nánast allar sýningar og eftirspurnin svo mikil að Borgarleikhúsið hefur hafið sölu á miðum fyrir jólin 2027. Þetta er fjölmenn og litskrúðug sýning og til þess að allt myndi hafast í tæka tíð hófst undirbúningur hjá búningadeildinni snemma í vor. Það þurfti að hanna og sauma hátt í hundrað búninga fyrir sýninga. Hólmfríður fór niður í Borgarleikhús í vikunni og hitti þar Maríu Th. Ólafsdóttur búningahöfund og ræddi við hana um sýninguna.
Vinir grænu jólatertunnar er hópur á Facebook sem telur 8300 meðlimi sem eiga það sameiginlegt að lofsyngja þessa lagköku frá Myllunni sem ratar í búðir um þetta leyti. Í netverslun Hugleiks Dagssonar geta aðdáendur nú fest kaup á prjónaðri peysu merktri jólatertunni en peysan er framleidd í samvinnu við Mylluna. Hugleikur Dagsson kíkti til okkar og ræddi ást þjóðarinnar á kökunni, ást sem hann brást við með því að láta gera peysu.
Það er gósentíð hjá tölvuleikjaunnendum en nú í nóvember kemur út hver stórleikurinn á fætur öðrum. Hér má helst nefna leikina The Legend of Zelda, World of Warcraft, Grand Theft Auto, Warzone og Football Manager. Eftirvæntingin fyrir nýjasta GTA leiknum er svo mikil að Morgunblaðið spáir flensufaraldri daginn sem leikurinn kemur út. Ólafur Þór Jóelsson og Sverrir Bergmann, sérfræðingar á sviði tölvuleikja, komu til okkar og fóru yfir þessi mál með okkur.
Kvennasögusafn býður hinsegin fólki til vinnustofu sem nefnist Út úr skjalaskápnum á Þjóðarbókhlöðunni á morgun. Þar á meðal annars að skoða áhrif fortíðar á skilning okkar á nútímanum, hvernig hinsegin fólk vill að sagan sé sögð og hvaða tækifæri eru til staðar til að segja söguna. Rakel Adolphsdóttir, verkefnastjóra Kvennasögusafns, og Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, sagnfræðingur kíktu til okkar og sögðu frá.
Undir lok þáttar mætu þeir Ingvar Þór Björnsson og Gísli Marteinn Baldursson og sögðu okkur hvað er fram undan í Vikunni og Vikulokunum.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.