
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Síðasti mánuður í lífi Ninu Rajani Tryggvadóttur Davidson fór ekki alveg eins og hún hafði séð fyrir sér. Hún er nemi á öðru ári í arkitektúr við Listaháskóla Íslands, en undir lok ágúst fór hún í skiptinám til Parísar. Frá 6. október hafa nemendur við skólann staðið í mótmælum, sem hafa sett strik í reikninginn. Nina var á línunni.
Þingmenn Miðflokksins vilja að ríkið niðurgreiði innanlandsflugferðir barna og ungmenna vegna landsliðsverkefna og að slíkar ferðir verði ekki háðar árlegri fjöldatakmörkun Loftbrúar. Börn og ungmenni á landsbyggðinni í yngri landsliðum þurfa reglulega að ferðast til höfuðborgarsvæðisins og oft eru þetta þónokkrar ferðir á ári. Margar fjölskyldur ráða illa við að standa undir þessum kostnaði og íþróttafélög eru sömuleiðis mis stöndug. Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um málið, og var á línunni.
Á laugardaginn ætlar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Bergur Vilhjálmsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður að efna til þrekdags til styrktar Ljósinu. Í inntökuferli slökkviliðsmanna þarf að standast þrekpróf sem reynir á allt: þol, styrk, einbeitingu og seiglu. Þrekprófið er tekið í sérstakri þrekbraut og þau sem fara hana einu sinni eru sátt með að ljúka henni einu sinni, en Bergur ætlar að endurtaka hana í 12 klukkutíma. Bergur er löngu orðinn þekktur fyrir líkamleg þrekvirki og styrki sína til góðra málefna og hvatningu um geðheilbrigði en hann hefur meðal annars gengið 100 km til styrktar Píeta samtökunum árið 2024, gekk frá Goðafossi til Reykjavíkur um Sprengisand á tveimur vikum í fyrra til að vekja athygli á sjálfsvígshugsunum og safna fé fyrir Píeta samtökin. Við fengum þetta ofurmenni til okkar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar að ómannað flygildi, eða svokallaður lögregludróni, verði settur upp á Seltjarnarnesi. Þetta er nýtt verkefni sem hefur verið til skoðunar í tæpt ár en markmiðið er að auka fyrsta viðbragð lögreglu á þessum hluta höfuðborgarsvæðisins. Seltjarnarnesbær myndi í því skyni leggja til aðstöðu, sem sagt húsþak og aðgang að rafmagni og neti en lögreglan myndi sjá um drónann og rekstur hans. Lögreglan bauð bæjarbúum á kynningu sem byrjaði klukkan 16. Við heyrðum í Þór Sigurgeirssyni bæjarstjóra Seltjarnarness.
Óánægja ríkir meðal stjórnenda Landspítalans vegna breytinga á skólagjöldum sem verða lögð á nemendur Háskóla Íslands frá löndum utan EES næsta haust. Margt heilbrigðisstarfsfólk hefur verið hér í innan við fjögur ár og læra íslensku sem annað mál við HÍ. Í aðsendri skoðanagrein á Vísi frá formanni íslenskra hjúkrunarfræðinga og formanni deildar erlendra hjúkrunarfræðinga, segir að þessar breytingar gætu haft áhrif á nýliðun erlends starfsfólks og á gæði og öryggi heilbrigðisþjónustunnar. Formennirnir Helga Rósa Másdóttir og Wendill Galan Viejo komu til okkar.
Hafdís Helgadóttir, barnabókahöfundur, næringafræðingur og kennari gaf út sína fyrstu barnabók, Ævintýri Petru papriku, árið 2024 en hún hefur mikinn áhuga á næringarfræðslu barna og því hvernig hægt er að miðla upplýsingum um mat og næringu á einfaldan, jákvæðan og skemmtilegan hátt.
Og vegna áhuga hennar og þekkingar fengu eigendur Skólamatar Hafdísi til að yfirfara alla matseðla þeirra út frá næringargildi og í haust var haldin Petru papriku vika í öllum leikskólum sem Skólamatur þjónustar. Samstarfið hefur einnig snúið að því hvernig hægt er að vekja áhuga barna á grænmeti, ávöxtum og hollum mat og fá þau til að smakka nýjan mat. Þær stöllur Hafdís Helgadóttir og Fanný Axelsdóttir hjá Skólamat komu til okkar.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.