
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Teymið að baki rannsókninni VAL við Háskóla Íslands leitar nú að fólki, 18 ára og eldra, sem er tilbúið að vera mögulegur viðtakandi peningagreiðslu. Með skráningu getur fólk hjálpað til við undirbúning stórrar rannsóknar á mannlegri hegðun og ákvarðanatöku í daglegu lífi sem hefst á næstunni. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og aðalrannsakandi rannsóknarinnar VAL kom til okkar.
Úkraína og Mið-Austurlöndin verða í brennidepli á 81. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna var sett í New York í dag. Leiðtogar 193 aðildarríkja ræða þar næstu daga helstu áskoranir í alþjóðasamfélaginu í skugga stríðsátaka. Við ræddum við Svanhildi Þorvaldsdóttur stjórnmálafræðing um mikilvægi þessa þings í ár.
Og það var komið að Spánarspjalli með Jóhanni Hlíðar beint frá Cartagena á Spáni. Jóhann sagði okkur frá frægustu konunni sem lifði af árásirnar ellefta september á New York hún mun vera spænsk og því að spánverjar kvarta nú sáran yfir hitasvækjunni sem er búin að vera alltumliggjandi í sumar og ekkert lát er á.
Að flytja verkefni til annarra, auka álag og kaupa síðar ráðgjöf er ekki sparnaður. Þetta skrifar Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, í aðsendri grein á Vísi um nýlegar uppsagnir í ráðuneytum. Hann bendir á að þó að uppsagnir eigi að senda þau skilaboð að stjórnvöld séu ábyrg og gangi á undan með góðu fordæmi þegar þau boði víðtækar aðhaldsaðgerðir, hverfi verkefni ekki með uppsögnum. Aftur á móti geti afgreiðslutími lengst, stofnanaminni horfið og aukin hætta verði á mistökum. Við ræddum við Hrafnkel.
Í gær ræddum við um mögulega dauðagildru á Reykjanesbrautinni sem hlustandi benti okkur á. Þar var um að ræða vöntun á vegriði þar sem ljósastaurar eru á milli akgreina. Við fengum Ólaf Guðmundsson umferðasérfræðing til að skoða þetta með okkur. Hann tók undir áhyggjur bréfritara. G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar, var á línunni.
Á morgun hefst íþróttavika Evrópu sem stendur út september þar sem fjöldi viðburða verða í boði víða um land sem eiga að hvetja okkur öll til að hreyfa okkur meira. Reykjavíkurborg verður með fullt af viðburðum í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland vegna íþróttavikunnar. Arna Hrönn Aradóttir, verkefnastjóri forvarna, lýðheilsu og félagsauðs hjá Reykjavíkurborg og Jakob Frímann Þorsteinsson, doktor á sviðið útimennturnar komu til okkar.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.