PartyZone - Undir diskókúlunni

Party Zone Undir diskókúlunni 18. júlí

Í þætti kvöldsins spilum við hvern dansslagarann á fætur öðrum í órökréttri en fumlausri röð.

Í fyrri hlutanum fáum við sjálfsögðu diskótvennu og förum út í frímínútur með þáttarstjórnendum þar sem þeir handvelja allskonar nostalgíudanssprengjur handa hlustendum.

Við kíkjum síðan inn á troðfullan skemmtistaðinn Prikið í kringum aldamótin í fylgd plötusnúðsins Benna B-ruff, förum aftur til dansársins 2004 og fikrum okkur svo auðvitað á barinn og hristum kokteil kvöldsins.

Birt

18. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

PartyZone - Undir diskókúlunni

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.

Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.

Þættir

,