Notað og nýtt 30. apríl
Í fjórða þætti Notað og Nýtt er þemað óvæntar uppgötvanir og þar skoðum við lög sem eiga óvæntar baksögur, slógu í gegn á merkilegan hátt eða voru enduruppgötvuð mörgum árum seinna.
Hildur skoðar hringrás tónlistarinnar og hvernig hún hefur verið endurnýtt gegnum tíðina. Fyrsti þáttur fjallaði um "samples" eða hljóðbrot úr öðrum lögum.

Af hverju finnst mér eins og ég hafi heyrt þetta lag áður? Í þáttunum Notað og nýtt er hringrás tónlistarsköpunar skoðuð og hlustað á lög sem endurnýta önnur lög. Tekin verða fyrir þekkt lög sem innihalda hljóðbrot (e.samples) úr öðrum lögum, kover lög skoðuð og kafað verður ofan í erlend lög með íslenskum texta sem fjölmargir Íslendingar halda að séu íslensk lög.
Umsjón: Hildur Kristín Stefánsdóttir.