Cantoque og Hjálmar.
Hljóðritun frá tónleikum á Myrkum Músíkdögum 26. janúar 2025.
Frá tónleikum Riot Ensemble sem fram fóru í Kaldalóni, Hörpu, 25. janúar 2025.
Á efnisskrá:
*Brother eftir Edmund Finnis.
*Insight eftir Dobrinku Tabakovu.
*Spectra eftir Önnu Þorvaldsdóttur.
*Öldugangur á öldrunarheimilinu eftir Guðmund Stein Gunnarsson - frumflutningur.
*Falter eftir Lisu Streich.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.
Ljósmynd: Brian Fitzgibbon/Myrkir músíkdagar

Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands, sem vettvangur fyrir íslensk tónskáld til að fá verk sín flutt.
Áhersla er á vandaða samtímatónlist með áherslu á nýja, íslenska tónlist og flytjendur í bland við erlend verk og erlenda flytjendur.