Föðurlandið, jólabækur og notalegar bíóferðir
Gestir Erlu Bjargar eru Dorothee Kirch markaðs- og þróunarstjóri Listasafns Íslands, Grímur Hákonarson kvikmyndagerðarmaður og Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins.
Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur eru þau Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir rithöfundur og Árni Pétur Guðjónsson leikari. Rætt var meðal annars um kvikmyndina Um tímann og vatnið, leikritið Breadcrumbs í Tjarnarbíó, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Eiríksþing, til minningar um Eirík Guðmundsson. Fram fór ljóðalestur í beinni útsendingu auk þess sem Ormstunga í Þjóðleikhúsinu, trúnó við jöklasérfræðing og margt fleira bar á góma.

Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.