Guðrún Elsa Bragadóttir og Kristín Svava Tómasdóttir um Dunu
Kvikmyndagerðarkonan Guðný Halldórsdóttir er einn afkastamesti leikstjórinn í íslenskri kvikmyndasögu. Með leiftrandi og beittum húmor að vopni hefur henni tekist að skapa ógleymanlegar…
Litríka dans- og söngvamyndin Regína lifir vel í minnum þeirra sem hana sáu um aldamótin. Agnes Wild, leikstjóri og teymisstjóri barna- og ungmennaþjónustu RÚV, ræðir mikilvægi góðra sagna fyrir ungmenni og hvernig hægt sé að koma boðskap til skila án predikunartóns.
Síðar í þættinum er rætt við Margréti Örnólfsdóttur, tónlistarkonu og handritshöfund sem skrifaði einnig Regínu. Hún segir frá hvernig hún fór frá því að skrifa fyrir börn yfir í að vera einn fremsti glæpaþáttahöfundur landsins.

Linsan beinir sjónum sínum að konum í kvikmyndagerð, afrekum þeirra og reynslu. Fjallað er um hinar ýmsu kvikmyndir sem gerðar hafa verið af konum og hafa sett mark sitt spjöld sögunnar.
Umsjón: Anna María Björnsdóttir.