Á ferð og flugi um Suður-Afríku (fjórði þáttur)
Fríða María elskar að ferðast og í hverjum þætti tekur hún fyrir land sem hún hefur nú þegar ferðast til eða langar að koma til í framtíðinni. Í þessum og síðustu þáttum ferðumst við…
Núna er apríl og þá er líka blár apríl. Markmiðið með bláum apríl er að fræða fólk um einhverfu og því mun það vera þema þáttarins í mánuðinum. Í þessum þætti fjallar Fríða um eina áhrifamestu stelpu í heimi, Gretu Thunberg. Hún er með Asperger sem er hluti af einhverfurófinu og talar sjálf um að það hjálpi henni mikið í sinni baráttu fyrir loftslagið. Fríða spjallar svo við unga umhverfissinna sem eru dugleg að mæta á skólaverkföll fyrir loftslagið hér á Íslandi, en það eru systkinin Ida Karólína og Elís Frank.
Viðmælendur: Ida Karolína Harris og Elís Frank Stephen.
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir

Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.