Suede og Flaming Lips á Airwaves 2000
Í Konsert vikunnar heyrum við tónleika Suede og The Flaming Lips á Iceland Airwaves árið 2000 í Laugardashöll.
Í Konsert í kvöld ætlum við að fara áratug aftur í tímann á 10 ára afmæli Blúshátíðar í Reykjavík sem fór fram þá eins og oftast – á Hótel Nordica. Og við ætlum að hlusta á Vini Dóra og minnast blúsforingjans hans Dóra – Dóra Braga – Halldórs Bragasonar sem lést af slysförum núna fyrir skemmstu. – Blúsman Islandus – blessuð sé minning hans.
En við förum líka á Bræðsluna núna í sumar og rifja upp eina tónleika þaðan, með Gildrunni úr Mosfellsbænum.

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.