Könglar og kertaljós

Leyft öllum aldurshópum

Sígrænt tré, jólalög og rauðir flauelskjólar

Jólalög eru ómissandi hluti af jólunum. Á aðventunni hljóma þau hvert sem við förum og oft er nóg að heyra fyrstu tónana og við erum komin inn í allt annan heim. Hér á landi eru mörg vinsælustu jólalögin upprunalega ítalskar poppballöður sem hafa með tímanum stimplað sig inn og eru ómissandi á jólaböllunumum. Í þriðja þætti Könglar og kertaljósa ætlum við að kynnast jólalögunum eilítið betur og tala við tónlistarmann sem veit sitt hvað um jólalög. Í þættinum verður einnig rætt við skógfræðing sem kennir okkur listina að halda ný hoggnu grenitré grænu og fallegu inn í stofu yfir hátíðina. Pakkarnir sem hafa farið undir tré landsmanna í tæp 200 ár verða skoðaðir og að lokum mun textílkennari segja okkur hvernig Íslendingar hafa komist hjá því að fara í jólaköttinn á 20. öld með því að klæða sig flauel, siffon og satín.

Lesari: Magnús R. Einarsson

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Könglar og kertaljós

Síðan hvenær varð það kappsmál baka 17 sortir fyrir jólin og gera eftirmynd af alþingishúsinu úr piparkökudeigi án þess blikna? Hvernig á velja jólatré og hvernig á koma í veg fyrir allt barrið falli af ? frysta frómas? Af hverju heitir hamborgarhryggurinn þessu nafni og hvernig á búa til gljáa á hann?

Aðventuþættirnir Könglar og kertaljós færa okkur aðeins nær jólunum og taka þátt í undirbúningnum með okkur. Saga jólahátíðarinnar verður skoðuð sem og saga nokkurra vel valinna muna sem tengja okkur svo sterkt við hátíðarnar eins og aðventukransinn, aðventuljósið og jólatréð og svo mætti áfram telja. Í þættinum verða líka ýmsir sérfræðingar teknir tali hvort sem þeir fást við blómaskreytingar, fornleifafræði, súkkulaðigerð, skógrækt, gullsmíði, sagnfræði eða kennslu í hússtjórn. Þeir munu leiða okkur í sannleikann um sögu smákökunnar, ísgerð, hvernig eigi matreiða rauðkál og margt fleira.

Umsjón hefur Gerður Jónsdóttir.

Þættir

,