Flytjendur á þessum tónleikum Kammermúsíkklúbbsins eru sannarlega glæsilegir fulltrúar yngri kynslóðar íslenskra hljóðfæraleikara; fiðluleikararnir Rannveig Marta Sarc og Herdís Mjöll Guðmundsdóttir og sellóleikarinn Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir. Sá fjórði í strengjakvartettinum er kóresk-bandaríski víóluleikarinn Brian Hong. Öll eru þau búsett erlendis en komu sérstaklega til landsins til að spila fyrir Kammermúsíkklúbbinn á tónleikum sem báru yfirskriftina Kvartettferðalag: Austurríki til Jamaíka og fram fóru í Norðurljósum, Hörpu fyrr á þessu ári.
Á efnisskrá:
- Strengjakvartett í f-moll, op. 20 nr. 5 eftir Josef Haydn.
- Strengjakvartett nr. 2 eftir Eleanor Alberga.
- Strengjakvartett í f-moll, op. 80, nr. 6 eftir Felix Mendelssohn.