Gull drengurinn og Gullárið í Hjartagosum
Við fengum bæði framtíð og fortíð í Hjartagosum dagsins.
Það var heldur betur fræðandi þáttur hjá Hjartagosum þennan morguninn. kór- og hljómsveitastjórinn Bragi Þór Valsson kom og útskýrði mátt sprotans. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur fór í saumana á orðskrípinu mellufær, þar voru allir á hálum ís. Lagalisti fólksins var auðvitað á sínum stað, þemað var stengja popp/rokk/disco!

Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 á föstudögum.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.