Eðli hugmyndanna
Í fyrsta þættinum verður spjallað um eðli hugmynda almennt.
Verður stöðnun í málþroska á unglingsárunum?
Hrafnhildur Ragnarsdóttir prófessor í þroska- og málsálfræði verður gestur í þættinum Heimur hugmyndanna. Umsjón: Ævar Kjartansson og Páll Skúlason

Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.