Heimskviður

Sumar-Heimskviður - Nágrannar

Donald Trump er ekki fyrsti forseti Bandaríkjanna sem viðrar hugmyndir um kaup á Grænlandi. Harry Truman vildi kaupa Grænland í upphafi kalda stríðsins og Andrew Johnson skoðaði hugmyndina sömuleiðis á nítjándu öld. Fljótlega eftir áramót, þegar mest fór fyrir umræðunni um ásælni Trumps í Grænland, skoðaði Birta sögulegan áhuga Bandaríkjanna á Grænlandi og flókið samband Danmerkur og Grænlands. Og líka áhuga Bandaríkjamanna á Íslandi.

Svo eru verða miklar breytingar í Færeyjum. Þeir eru farnir gera eins og við Íslendingar og kenna sig við foreldrana og enda nöfnin á -son eða -dóttir í staðinn fyrir þessi dönsku, Jensen og Olsen og það allt saman. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallaði um þessar breytingar í febrúar, og talaði meðal annars við Hönnu í Horni, sendiherra Færeyja á Íslandi, sem eins og margir aðrir gera núna og kennir sig við heimahagana.

Frumflutt

19. júlí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,