Gull og grænir skógar

Þingholt: Merkur gróður, saga og brautryðjendastarf Einars Helgasonar

Gengið er um Þingholtin og sunnan við Þingholt þar sem gróðrarstöð Einars Helgassonar stóð. Rætt er um merkilegan gróður við Laufásveg, Fjölnisveg, Urðarstíg og víðar. Fjallað er sérstaklega um bergfléttur eins og þá sem kennd hefur verið við bæði Hringbraut 10 og Sóleyjargötu 37 – sem er í raun og veru sama húsið. Beyki og askur við Laufásveg eru heimsótt en askurinn var stærsta tré Reykjavíkur um tíma. Smakkað er á kirsuberjum af fuglakirsi við Urðarstíg. Gengið er um með Samson Bjarnari Harðarssyni garðyrkjufræðingi og langslagsarkitekt. Sveighyrnir, svartelri og umhirða á öldnum ilmreyni koma einnig við sögu.

Viðmælandi: Samson Bjarnar Harðarson.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Gull og grænir skógar

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.

Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.

Þættir

,