Grindavík: fyrstu dagarnir eftir rýmingu - Fyrsti þáttur
Grindavíkurbær var rýmdur föstudagskvöldið 10. nóvember. En hvernig hafði dagurinn verið fram að rýmingu? Við heyrum frásagnir nokkurra bæjarbúa af þessum degi, sem byrjaði ósköp venjulega…
Það er kominn miður mars og á Alþingi er búið að samþykkja frumvarp um kaup ríkissjóðs á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Við heyrum í nokkrum Grindvíkingum um hvernig þau sjá framtíðina fyrir sér.
Viðmælendur: Ólafur Þór Þorgeirsson, Emilía Ósk Jóhannesdóttir, Klara Halldórsdóttir, Bentína Frímannsdóttir og Marteinn Guðbjartsson.
Umsjón og dagskrárgerð : Gígja Hólmgeirsdóttir.

Föstudagurinn 10. nóvember 2023 var upphafið að nýjum kafla í sögu Grindavíkur. Íbúar bæjarins neyddust til að yfirgefa heimili sín í miklum flýti og við tók gríðarleg óvissa um framtíðina. Í þessum þáttum fylgjumst við með lífi Grindvíkinga þróast í takt við sífelldar breytingar.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.