Tuttugasti þáttur
Sérhver þáttur er óvissuferð með örsögum og minningum um Bítlatímann. Í þessum þætti er meðal annars fjallað um hljómleikaferðir Bítlanna um Bretland á árunum 1963 til 1965 og spiluð…
Þeir sem ólust upp á bítlatímanum lifðu fordæmalausa tíma. Tónlist, tíska, tíðarandi. Allt breyttist á tímum Bítlanna. Í þessari þáttaröð rifjar Gunnar Salvarsson upp persónulegar minningar sínar og annarra, skoðar viðbrögð við bítlaæðinu og spilar síungt og sígilt bítl frá ýmsum tímum.

Bítlarnir hristu upp í heiminum í upphafi sjöunda áratugar síðustu aldar, breyttu taktinum og gáfu ungu fólk rödd. Í síðari þáttaröð sinni flögrar Gunnar Salvarsson um bítlatímann og dregur fram eigin minningar og annarra, segir sögur og spilar ógleymanleg lög sem bítlakynslóðin dáði.
Umsjón: Gunnar Salvarsson.