1. Frumherjarnir
Í þættinum er upphafið rakið þegar fyrstu Balkanmennirnir komu í íslensku deildina árið 1989 og þegar þeim byrjar að fjölga ári síðar. Af hverju komu þessir menn til Íslands? Rætt…
Í þessum sjötta og síðasta þætti skoðum við aðeins arfleifð þessara leikmanna, hvaða áhrif þeir höfðu á íslenskan fótbolta og hvað þeir eru að gera í dag. Rætt er við Hjörvar Hafliðason, Rúnar Kristinsson, Goran Kristófer Micic, Hajrudin Cardaklija, Luka Lúkas Kostic, Salih Heimi Porca, Izudin Daða Dervic, Milan Stefán Jankovic, Zoran Daniel Ljubicic, Ejub Purisevic, Heimi Karlsson
og Guðna Bergsson.

Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson