Mörg tónskáld hafa líkt eftir vindi í tónsmíðum sínum og í þessum þætti verða flutt nokkur slík verk. Þar á meðal er flautuverkið „Andvari I“ eftir Báru Grímsdóttur, sönglagið „The wind at dawn“ eða „Vindur í dögun“ eftir Edward Elgar, flautukonsertinn „La tempesta di mare“ – „Stormur á hafi“ – eftir Antonio Vivaldi og píanóverkið „Comme le vent“ – „Eins og vindurinn“ – eftir Charles Valentin Alkan.