Kvöldstund 1972 -1973

Þáttur 7 af 8

Kvartettinn Lítið eitt flytur fjölbreytta skemmtidagskrá þar sem dægurlög, ljóðalestur, dans og leikur fléttast saman. Meðal tónlistaratriða eru flutningur Maríu Baldursdóttur á Killing Me Softly, söngur Jóhanns Konráðssonar á lögunum Lindin og Dísa, auk atriða með Tríóinu Hanniböl, Janis Carol Walker og Halldóri Kristinssyni úr söngleiknum Oklahoma.

Skopleg innslög með Gísla Rúnari Jónssyni og Júlíusi Brjánssyni og Þórir Sigurbjörnsson leikur á reiðhjólapumpu, reykjarpípu og sög. Jóhann Hjálmarsson flytur ljóð við tónlistarundirleik og dansparið Heidi og Lennie Freddie Pedersen stígur rumbu og cha-cha-cha. Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. maí 1973.

Birt

17. nóv. 2020

Aðgengilegt til

20. júní 2026

Kvöldstund 1972 -1973

Skemmtiþættir frá áttunda áratugnum. Helstu listamenn þjóðarinnar skemmtu í sjónvarpssal. Umsjón: Jónas R. Jónsson og stjórnandi upptöku: Egill Eðvarðsson.

Þættir

,