Kvöldstund 1972 -1973

Þáttur 6 af 8

Í þættinum leiða Kvartettinn Lítið eitt, Gísli Rúnar Jónsson og Júlíus Brjánsson áhorfendur í gegnum fjölbreytta dagskrá þar sem leikþættir fléttast saman við dægurlög, djass og þjóðlagatónlist. Þátturinn hefst á gamansömum páskaeggsmálsháttum og inniheldur fjölda tónlistaratriða, m.a. lagasyrpu úr Sardafurstynjunni í flutningi Keflavíkurkvartettsins, flutning Jazzkvartettsins og söng Magnúsar Kjartanssonar, Ingu Maríu Eyjólfsdóttur, Ara Jónssonar og Shady Owens.

Einnig bregður fyrir hefðbundnum íslenskum hljóðfæraslætti þegar Egill Friðleifsson leikur á langspil þjóðlagið Kvölda tekur sezt er sól, auk vorvísu í flutningi Hermóðs Alfreðssonar.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. mars 1973.

Birt

10. nóv. 2020

Aðgengilegt til

20. júní 2026

Kvöldstund 1972 -1973

Skemmtiþættir frá áttunda áratugnum. Helstu listamenn þjóðarinnar skemmtu í sjónvarpssal. Umsjón: Jónas R. Jónsson og stjórnandi upptöku: Egill Eðvarðsson.

Þættir

,