Bráðnun jökla og byggingafúsk
Útlit er fyrir að árið 2020 verði eitt af þremur hlýjustu árum á jörðinni síðan mælingar hófust. Það eru sérstaklega vondar fréttir fyrir náttúrufyrirbæri úr ís. Vatnajökull hefur…
„Það varð bara stórslys. Það er bara þannig,“ segir Jóhanna Jakobsdóttir, líftölfræðingur og einn af höfundum spálíkans Háskóla Íslands um þróun faraldursins. Eftir ótrúlegan árangur í vor reis önnur bylgja síðsumars og svo skall þriðja bylgjan á um miðjan september og það fór allt á hliðina. Hvernig gat Ísland verið komið í þessa stöðu?

Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.
Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Helgi Seljan, Brynja Þorgeirsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Ingvar Haukur Guðmundsson og Árni Þór Theodórsson.