11:25
Vikan með Gísla Marteini
6. nóvember 2026

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.

Gestir þáttarins eru Nanna Kristín Magnúsdóttir, Sandra Barilli og Valur Freyr Einarsson.

Berglind Festival fer yfir fréttir Vikunnar ásamt Sölku Gústafs.

Krummi Björgvins flytur lagið Bak við fjöllin í miðjum þætti.

Saga til næsta bæjar er á sínum stað.

Bjarni Daníel og hljómsveit flytja lagið Dísel í lok þáttar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 10 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Endursýnt
,