
Vikulokin
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
erslunarrekstur, virkjanir og staðan í stjórnmálunum verða rædd í Vikulokum dagsins.
Viðskiptaumhverfið og verslunarrekstur hér á landi verður til umræðu í fyrsta hluta Vikulokanna. Gísli Þór Sigurbergsson, eigandi Fjarðarkaupa og Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku ræða við Ingvar Þór Björnsson.
Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, ræða raforkuframleiðslu og virkjunarkosti í öðrum hluta þáttarins.
Í lokin mæta Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, og Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og fara yfir stöðuna í stjórnmálunum.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.