
Jón Nordal - Fáheyrð tónlist
Hljóðritun frá tónleikum Caput hópsins, sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu 16. mars sl.. Tónleikarnir voru helgaðir tónlist Jóns Nordals og haldnir í tilefni þess að hinn 6. mars voru liðin 100 ár frá fæðingu Jóns.
Á efnisskrá:
*Næturljóð á hörpu.
Einleikari: Elísabet Waage.
*Konsert fyrir píanó og hljómsveit í úsetningu Hauks Tómassonar fyrir sinfóníettu.
Einleikari: Helga Bryndís Magnúsdóttir.
*Brotaspil fyrir hljómsveit í útsetningu Hauks Tómassonar fyrir sinfóníettu.
Stjórnandi: Guðni Franzson.
Einleikararnir, Helga Bryndís og Elísabet, hafa leikið með Caput nánast frá upphafi. Jón samdi Nocturne fyrir Elísabetu fyrir útskriftartónleika hennar frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1987 og píanókonsertinn sem Helga Bryndís leikur, frumflutti Jón sjálfur með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Þjóðleikhúsinu árið 1956.
Á tónleikunum var einnig flutt verkið Brotaspil, eitt „módernískasta“ verk tónskáldsins sem legið hefur í þagnargildi í rúm 60 ár frá því að Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflutti það árið 1962.
Umsjón með tónleikum hefur Pétur Eggertsson.