1. Einhvers staðar, einhvern tímann aftur
Draugar fortíðar ásækja bráðalækninn Kristínu þegar hún flytur með Lilju, unglingsdóttur sinni, heim til foreldra sinna á Hólmafirði og reynir að ná áttum eftir framhjáhald eiginmanns…
Læknaritarinn á heilsugæslunni, sem hefur nýtt stöðu sína um áraraðir og selt grasalyf, hundsar bann Kristínar við því með alvarlegum afleiðingum. Á sama tíma stigmagnast vandamálin í einkalífi Kristínar.

Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.