6. nóvember 2026
Gestir þáttarins eru Nanna Kristín Magnúsdóttir, Sandra Barilli og Valur Freyr Einarsson.
Gestir þáttarins eru Andrean Sigurgeirsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Þátturinn hefst á dansatriði frá Íslenska dansflokknum.
Hljómsveitin TÁR flytur lagið Isn't life a bitch.
Jóga Gnarr er með Sögu til næsta bæjar.
HAM bindur enda á þáttinn með glænýju lagi, laginu Inni í höfði mér.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.