Spenningur
Þegar þú hlakkar mikið til einhvers er stundum erfitt að hugsa um eitthvað annað. Spenningur eða tilhlökkun er jákvæð tilfinning sem gerir lífið skemmtilegra - en þegar tilfinningin…
Allir finna einhverntíma fyrir kvíða, það er alveg eðlilegt. Kvíði getur látið okkur líða illa. Við getum upplifað hraðan hjartslátt, svima og verk í maga. Sölvi og Júlía skoða þessa tilfinningu og komast að því að hún er alls ekki hættuleg og getur stundum jafnvel verið gagnleg.
Tilfinningalíf er unnið í samstarfi við Sálstofuna.

Inni í okkur öllum búa allskonar tilfinningar. Gleði, reiði, leiði, kvíði, spenningur og svo ótal margar fleiri tilfinningar.
Þættirnir Tilfinningalíf fjalla um þessar tilfinningar og hvernig við bregðumst við þeim.
Umsjón: Júlía Ósk Steinarsdóttir og Sölvi Freyr Helgason
Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdótir og Elvar Örn Egilsson