Þáttur 2 af 5
Eftir niðurlægingu og tímabundna niðurfellingu liðsins er landsliðið endurreist. Ný kynslóð mætir til leiks, gömlu kempurnar snúa aftur og stelpurnar fá loksins að stíga á völlinn…
Heimildarþáttaröð um íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, upphafsár þess og sögu, sigra og ósigra. Liðið er eitt þeirra fremstu í heiminum og stjörnur þess með þekktustu íþróttamönnum þjóðarinnar. En leið kvennalandsliðsins á þann stað sem það er á í dag var allt annað en greið.