Það eru jól og allt á að vera svo bjart og fallegt en þegar Birta og Bárður vakna einn morguninn rétt fyrir hátíðina sjá þau að allt er að verða svo litlaust og grátt. Jólatréð er orðið svart og þau fá bara eitthvað slím og svarta könguló í skóinn. Þar sem þau eru að furða sig á þessu kemur undarlegur lítill glóandi hnöttur til þeirra og segist heita Fabula og vera frá Ævintýralandi. Þar er ástandið orðið mjög slæmt því að jólastressið er að ná yfirhöndinni yfir jólagleðinni og allt að missa lit og ljóma. Þar að auki er Jarðafara-Jónas búinn að taka það að sér að bjarga jólunum en hann er bara ekki að standa sig og nú ætlar hún að biðja þau, Birtu og Bárð að bjarga málunum.