27. september 2008
Spaugstofan gerir góðlátlegt grín að góðærinu, bankakerfinu og pólitíkinni – þar sem Íslendingar taka upp evruna í algjörri leynd, nema fyrir einum manni sem má alls ekki vita af því.
Í miðri kreppu reyna stjórnvöld að bjarga orðspori þjóðarinnar með því að endurhanna Ísland – nýtt nafn, nýjan fána og nýjan þjóðsöng fyrir landið sem fór „laglega á hausinn“.

Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.