Þáttur 1 af 5
Í fyrsta þætti Siglufjarðar - sögu bæjar segir frá afskekktri byggð, umkringdri háum fjöllum, sem var lengi utan alfaraleiðar. Hákarlaveiðar voru ein helsta atvinnugreinin í bænum…
Þáttaröð í umsjón Egils Helgasonar þar sem saga Siglufjarðar er rakin. Bærinn var lengi utan alfaraleiðar en vegna mikils uppgangs á 20. öld varð hann þungamiðja síldveiða sem um skeið voru arðvænlegasta atvinnugrein á Íslandi. Í þáttunum er einnig sagt frá skemmtanalífi, rómantík, slagsmálum, tónlist, skíðaiðkun og einstökum bæjarbrag. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.