Najmo Fyiasko Finnbogadóttir
Najmo Fyiasko Finnbogadóttir hefur þurft að þola margt á lífsleiðinni þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gömul. Hún var þvinguð í hjónaband 11 ára gömul í fæðingarlandi sínu, Sómalíu,…
Sigmar ræddi við Sigurð Guðmundsson fyrrum landlækni sem gegndi embættinu um tíu ára skeið. Hann telur að þeir sem hafni því að láta bólustetja börnin sín sýni því fólki sem er útsett fyrir alvarlegum sjúkdómum vanvirðingu. Hann starfaði sem læknir í Malaví og varð það svo djúpstæð reynsla að hann talar um lífshlaup sitt í tveimur hlutum, fyrir og eftir Malaví. Hann er einnig ekki hrifinn af því fyrirkomulagi að fólk eigi helst að hætta að vinna þegar það verður sjötugt.

Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.