Iceguys, Elma, hljómsveitin Marsibil og kabarett
Kvikmynda- og sjónvarpsgagnrýnendur Miðstöðvarinnar, Brynja Hjálmsdóttir og Ólafur Alexander, ræða nýju Iceguys-kvikmyndina og þættina Elma í Sjónvarpi Símans premium.
Álitsgjafar þáttarins, Kolfinna Nikulásdóttir og Atli Már Steinarsson, kryfja menningarfyrirbærið Kanye West.
Við kynnumst tónlistarmanninum Hafsteini Þráinssyni sem er maður margra hatta. Hann er mjög virkur í gerð kvikmyndatónlistar og segir okkur allt um það. Hafsteinn frumflytur lag í þættinum sem hann gefur út undir listamannsnafninu Ceasetone.
Grínistarnir og glaumgosarnir Sandra Barilli og Jóhann Alfreð koma í spjall, meðmæli og spurningakeppni. Þau segja okkur frá karókíkeppni sem þau standa fyrir á næstunni.

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.