Með okkar augum 14

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 5 af 6

Við skoðum árangur Listvinnslunnar í þágu fatlaðs listafólks og skellum okkur í Skyrgerðina í Hveragerði til að smakka. Einnig hittum við Jón í starfi hans hjá Efnalaug á Selfossi, kynnumst því hvernig Golfsambandið ætlar að gera gangskör í þjálfun fatlaðra kylfinga og heimsækjum Seðlabankann við Kalkofnsveg. Í Tvennunni er rætt við feðginin Eddu Sif Pálsdóttur og Pál Magnússon. Loks kynnumst við samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Með okkar augum 14

Fjórtánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,